Fínn náungi Phil Brown ... eitthvað annað en Gordon !

Mér finnst sérlega ánægjulegt að fylgjast með frammistöðu Phil Brown með nýliða Hull City í ensku úrvalsdeildinni. Ég kynntist honum þegar hann var aðstoðarknattspyrnustjóri hjá Bolton Wanderers, meðan Sam Allardyce var stjóri. Þetta er hinn geðþekkasti maður, eins og Guðni Bergs, Arnar Gunnlaugs. og Eiður Smári geta borið vitni um. Phil hætti hjá Bolton til að taka við stjórastöðu hjá Derby County fyrir einum þremur árum. Hann kom með Derby í æfingaferð til Íslands í júlí (!) og léku þeir gegn ÍA, sem vann óvæntan sigur. Það gekk ekkert hjá Derby í 1. deildinni þetta tímbil og Phil var látinn fara. En "you can´t keep a good man down", eins og sagt er og Phil Brown er kominn aftur í baráttuna. Hann kom Hull City upp í úrvalsdeild á mettíma og félagið frá fiskimannabænum hefur komið verulega á óvart í upphafi keppnistímabilsins í Englandi. Hann á þessa útnefningu sannarlega skilið; "it could not happen to a nicer bloke".

Það skal tekið fram að Phil er ekkert skyldur Gordon Brown, forsætisráðherra Bretaveldis, sem farið hefur offari og orðið sér til skammar fyrir árásir sínar og áróður um Ísland og Íslendinga í enskum fjölmiðlum í vikunni. Þar fer ekki fínn pappír.

Góða helgi !

Hörður Hilmarsson


mbl.is Brown knattspyrnustjóri mánaðarins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hörður Hilmarsson
Hörður Hilmarsson
Framkvæmdastjóri ÍT ferða, fyrrum kennari, íþróttamaður og þjálfari
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 39940

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband