25.1.2009 | 15:30
Þarf að vera hér flokkalýðræði ?
Ég hef oft hugleitt það hvort það sé til önnur og betri leið en það flokkalýðræði sem við búum við.
Hef lengi verið ósáttur við að verða að kjósa einn flokk .... eða skila auðu vegna óánægju með þá valkosti sem verið hafa í boði.
Er ekki hægt að skipa málum þannig að þótt fram séu boðnir listar með nöfnum frambjóðenda að fólk geti valið þá frambjóðendur sem þeim líst best á, burtséð frá því hvar í flokki þeir standa?
Ég vil geta kosið um fólk, ekki flokka.
Ég myndi kjósa, ef ég gæti, a.m.k. eina hagsýna húsmóður, a.m.k. einn frambjóðanda sem hefur náð árangri í viðskiptum (þ.e. rekið fyrirtæki sem skilaði arði), nokkra sem bera hag þeirra sem minna mega sín fyrir brjósti o.s.frv. þannig að sýnt væri að öll þau sjónarmið sem mér finnast skipta máli eigi sér rödd, fulltrúa á Alþingi.
Ég hef ekki hugmynd um hvort þetta sé hægt eða hvernig, en finnst rétt að viðra þessar skoðanir mínar, hugsa upphátt, nú þegar stefnir í allsherjar uppgjör, endurskoðunar stjórnarskrár o.fl.
Ég er hins vegar ekki sammála þeim röddum að lækka eigi laun þingmanna og ráðherra.
Sé ekki hvernig það geti stuðlað að eftirsókn hæfasta fólks landsins eftir setu á þingi þegar það getur fengið miklu hærri laun hjá einkafyrirtækjum, þótt vissulega séu launakjör ekki allt.
En það má vissulega fækka þingmönnum talsvert og mér hugnast vel sú hugmynd að þingmenn séu ekki um leið ráðherrar, þ.e. þeir þingmenn sem valdir eru til að gegna ráðherraembættum segi af sér þingmennsku.
Með von um betri tíð með blóm í haga, fyrir okkur öll.
Hörður Hilmarsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Tenglar
Mínir tenglar
- RÉTTLÆTI.is Barátta fyrir 100 % endurgreiðslu sparifjár í peningabréfum Landsbankans
- ÍT ferðir Ferðaskrifstofa íþróttamannsins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.5.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 17
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Af mbl.is
Innlent
- Fundi frestað og viðræður á viðkvæmu stigi
- Sindratorfæran næstu helgi
- Hafa fundað í tíu tíma og eru enn að
- Hrina nærri Eldey: Skjálfti upp á 3,5
- Myndir: Frambjóðendurnir komu allir saman
- Manndráp á síðustu árum töluvert yfir meðaltali
- Tæpar fimmtán gráður mældust í dag
- Potturinn gleymdist
- Gekk 16 kílómetra á kjörstað til þess að mótmæla
- Hundrað prósent vampíra
Erlent
- Þrír létust í árásinni og tólf særðust
- Keyrt á hlið Hvíta hússins
- Fundu skotsár á höfðum ferðamannanna
- Xi Jinping í París
- Viðræðum um vopnahlé lokið í bili
- Loka landamærum að Gasa eftir árás
- Fordæma ákvörðun um að banna Al Jazeera í Ísrael
- Samþykkir ekki vopnahléstillögu
- Unglingur handtekinn eftir árás á þingmann
- Líkin þrjú eru af ferðamönnunum
Fólk
- Bernard Hill látinn
- Sminkaður í allt að fjóra klukkutíma
- Neitar ásökunum heimildarmyndarinnar
- Biblían er í mínum huga ein versta bók sem til er
- Rifjaði upp gamla takta í gríninnslagi
- Ég get ekki beðið eftir að túlka þessa mögnuðu konu
- Palestínski fáninn bannaður í Eurovision-höllinni
- Gekk rauða dregilinn í gervi Beavis
- Þungarokkssveitin Manowar til Íslands
- Hljómborðsleikari ELO látinn
Viðskipti
- Arðsemin dregst saman
- Vöruafgreiðsla IKEA komin á nýjan stað
- Hefja lyfjaprófanir á næsta ári
- Guðmundur valinn frumkvöðull ársins hjá EWMA
- Tekjur Controlant jukust um 52 milljónir dala
- Guðný og Sigurður til Samtaka iðnaðarins
- Allra augu á opinbera markaðinum
- Íslandsbanki skilar hagnaði
- Stjórnvöld hafa tvo mánuði til að bregðast við
- Landsbankinn skilar 7,2 milljarða hagnaði
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.