14.3.2009 | 10:56
Ingi Björn er maður fólksins
Ég styð Inga Björn Albertsson í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Get því miður ekki stutt hann með atkvæði mínu, því ég bý í Kópavogi, en vona að sem flestir þátttakendur í prófkjörinu setji Inga í 2.-5. sæti. Ingi Björn er vandaður og heiðarlegur maður með heilbrigða skynsemi og slíkir menn eiga fullt erindi á Alþingi okkar Íslendinga. Það er krafa í samfélaginu um endurnýjun ("nýliðun") þingmanna og það er gott og blessað, en ég held að það sé ekki farsælt að á Alþingi setjist eingöngu nýtt fólk með enga reynslu af þingstörfum. Ingi Björn á að njóta góðs af því að hafa setið á þingi í 8 ár, fram til 1995 þegar hann dró sig út úr stjórnmálaþátttöku. Nú er hann tilbúinn til að leggja sitt af mörkum til að byggja hér upp réttlátt samfélag, þar sem gagnsæi ríkir í störfum þings, stjórnar og fjármálastofnana. Vonandi nær hann tilætluðum árangri til að geta haft áhrif á það samfélag sem reist verður á rústum þess sem hrundi.
Ingi Björn er maður að mínu skapi. Hann er maður fólksins.
Með helgarkveðju
HH
Líflegasta prófkjörshelgin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Tenglar
Mínir tenglar
- RÉTTLÆTI.is Barátta fyrir 100 % endurgreiðslu sparifjár í peningabréfum Landsbankans
- ÍT ferðir Ferðaskrifstofa íþróttamannsins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.