23.4.2009 | 18:35
Það að skila auðu er afstaða!
Ég skil þá vel sem hyggjast skila auðu í Alþingiskosningunum á laugardaginn.
Ábyrgð á bankahruninu er ekki bara bankastjórnenda og -eigenda, Seðlabankans og FME, heldur bera stjórnvöld síðustu ára og alþingismenn einnig mikla ábyrgð, hvort sem þessir aðilar viðurkenna það eða ekki.
Það að skila auðu í kosningunum met ég sem óánægju með þá valkosti sem eru í boði, bæði gömlu flokkana og nýju framboðin. Ef kjósanda hugnast enginn þeirra flokka og hreyfinga sem í framboði eru, af hverju á hann þá að kjósa þann sem honum finnst minnst slæmur?
Nei, autt atkvæði er afstaða og því miður vel skiljanleg í ljósi atburða s.l. ára og heldur dapurra, nýrra valkosta.
![]() |
Fleiri munu skila auðu og strika yfir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Tenglar
Mínir tenglar
- RÉTTLÆTI.is Barátta fyrir 100 % endurgreiðslu sparifjár í peningabréfum Landsbankans
- ÍT ferðir Ferðaskrifstofa íþróttamannsins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Af mbl.is
Innlent
- Allt við þessa heimsókn var óviðeigandi
- Neyðarsöfnun hafin fyrir þolendur jarðskjálftana
- Að hugsa út fyrir boxið
- Mikilvæg breyting í Úlfarsárdal
- Baldur: Bandaríkin vilja ráða yfir Íslandi
- Jón Gunnar tekur sæti í stjórn rafeyrisfyrirtækis
- Gul viðvörun víða um land á morgun
- Myndir: Deildarmyrkvi á sólu
- Kræsingar fyrir augu og eyru
- Kúnstpása hefur verið valdeflandi
Erlent
- Íslendingur í Bangkok: Við fengum enga viðvörun
- Skortur á lækningabúnaði hamlar aðstoð
- Björguðu konu á lífi 30 tímum eftir skjálftann
- Heimsókn Vance leiddi til ýmissa viðbragða
- Yfir 90 manns líklega fastir undir brakinu
- Heimsókn undirstrikar Grænlandsáhuga
- Leitaði að skrímsli en fann mann
- Fundu örplastsagnir í jórturleðri
- Umdeilt forsetaframboð McGregors
- Myndskeið: Öngþveiti á spítala í höfuðborginni
Athugasemdir
Frá mínum sjónarhóli þýðir það að skila auðu að viðkomandi vilji láta aðra um að taka afstöðu fyrir sig.
Það skiptir ekki máli þótt allir valkostirnir séu slæmir....það er þá betra að kjósa þann illskásta.
Púkinn, 24.4.2009 kl. 18:18
Ég áskil mér þann rétt að vera ósammála athugasemd "púkans".
Ég hef aldrei viljað láta "aðra taka afstöðu fyrir mig" og ég vil alls ekki láta þá aðila, flokka og hreyfingar, sem nú bjóða fram ákveða fyrir mig hvað á að gera í þeim fjölmörgu vandamálum sem við blasa. - Ég treysti þeim ekki!
Það er kominn tími til að losa land og þjóð við það flokksræði sem verið hefur við lýði hér frá stofnun lýðveldis og koma á raunverulegu lýðræði. Fyrsta skrefið er að kjósendur geti valið þvert á flokka og hreyfingar það fólk sem það treystir best til að sitja á Alþingi, þ.e. af þeim sem gefa kost á sér.
Ég ítreka að ég tel það skiljanlega afstöðu að skila auðu og í raun betri en að styðja þá valkosti sem í boði eru. Vildi að svo væri ekki, en svona er þetta samt.
Hörður Hilmarsson, 24.4.2009 kl. 21:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.